|
Eitthvað til að dunda sér við:)
|
05.07.2006 20:48:03 / evilsen
sælt veri fólkið.
uhh.. hvað er eilla langt síðan ég bloggaði seinast? shit..
soltið langt.. en ég er allavega enn á lífi, og spræk sem aldrei
fyrr..
Það eru núna ein og hálf vika síðan ég kom frá Englandi,
skemmtireisu með familíjunni, en fjölskyldan ætlaði að vera aðeins
lengur.. þau koma svo núna á föstudaginn.. er búin að vera ein
heima í eina og hálfa viku, and I like it.. alot... hehe.. já
kannski mar segi ykkur aðeins frá Englandinu... við fórum í svona
siglingu á sýkjunum þanna í kringum london og svo endaði ég ferðina
á smá útsýnisferð um london og fór m.a. í Westminster Abbey sem
mjög fáir vita hvað er, en ég var allavega ánægð með það.. þetta er
kirkjan sem allir kóngarnir og drottningarnar eru grafin í... voða
flott.. 
ég ætla að fara núna.. segi ykkur betur frá einhverju
seinna..
bæ í bili
»
17.05.2006 20:57:49 / evilsen
já hæj.. ég sagðist ætla að blogga aftur þegar ég væri í góðu
skapi.. so here i am..
Það er búið að vera æðislegt veður úti í dag og ég lofaði
sjálfri mér það að ekkert mundi eyðileggja það í dag.. hehe.. ekki
einusinni það að læknirinn gleymdi því aftur, eftir að ég var búin
að hringja í 3ja skiptið, að skrifa upp á lyfseðill fyrir mig getur
komið mér úr jafnvægi.. hehe.. ætli hann sé með Alzheimer? 
Svo er barasta prófin að byrja í næstu viku.. Frekar leiðinlegt
að allir vinir manns eru búnir í prófum og ég að fara að byrja.. en
ég lofaði.. ég er i góðu skapi.. þetta er bara solleis núna,
en breytist til hins betra þegar ég verð komin suður í skóla..
hehe.. jább..
Mamma hringdi í mig í gær með þær gleðifréttir að hún væri búin
að panta flug fyrir mig til Englands með þeim.. ohh.. ég get sko
ekki beðið, þetta á eftir að verða æðislegt.. ég er bara með góðar
minningar frá seinustu Englandsferð og hef einhverjar grunsemdir um
að þessi ferð eigi eftir að verða en skemmtilegri fyrir utan það að
yndið mitt, Hanna systa, kemur ekki með.. En að sjálfsögðu
styttist alltaf í það að hún komi heim.. mm.. love it, vá ég er í
svo góðu skapi.. 
Jáh.. ég hef ákveðið að þetta sumar verði mitt besta sumar sem
ég hef lifað.. obbobbobb.. æðislegt..´
Mig dreymdi einhverja steypu í nótt.. það kemur kannski ekki
mörgum á óvart að mig dreymi einhverja steypu á nóttunni eða geri
eitthvað asnalegt í svefni.. T.d. um daginn, ég get svo svarið það,
það var einhver í herberginu mínu Ég gerði eitthvað sem ég hef
aldrei áður gert í svefni, ég stóð upp úr rúminu mínu, svona
hálfmeðvituð um hvað ég væri að gera, samt sofandi, og ég fékk mér
tyggjó til þess að geta talað við þann sem var í herberginu mínu
þetta er samt soltið fyndið hversu furðuleg ég get verið í
svefni...
En já, ég er að hugsa um að segja þetta gott.. ég gæti endað með
bloggfærslu sem væri kílómeterslöng eða eitthvað ef ég held sona
áfram.. Bless elskurnar..
Evensen, í sumarfílíng, over and out.
»
14.05.2006 14:55:15 / evilsen
Ég er hér stödd til þess að lýsa yfir reiði minni á starfi lækna
og heilbrigðisþjónustu á Akureyri. Ég átti pantaðan tíma hjá
lækni á föstudaginn seinasta. áður en ég átti að mæta hringir konan
í mig og segir mér að læknirinn sem ég átti að fara til sé veikur.
Hún spyr að því hvort þetta hafi verið merkilegt og eitthvað sem
gæti ekki beðið. Ég svara játandi og að mig vanti lyf strax. Hún
segist ætla að biðja lækni um að skrifa lyfseðill fyrir mig og
senda pöntunina niður í apótek. Klukkutíma síðar er ég mætt niður á
Glerártorg í apótekið að sækja lyfin. Afgreiðsludaman segir mér að
ég eigi engin lyf þarna og þess vegna hringi ég upp á
heilsugæslustöð og spyr afhverju þetta sé ekki komið. Konan biðst
afsökunar og segist ætla að ítreka við lækninn að gera þetta. 'Eg
eyði klukkutíma í búðunum á Glerártorgi og tékka á þessu aftur. Nei
ekkert komið ennþá. Ég segist ætla að koma daginn eftir og ná í
þetta þá afþví ég hefði ekki allan daginn í að bíða. Daginn eftir
er ég mætt aftur til að ná í lyfin. Afgreiðsludaman: Uhh, hann
hlítur að hafa gleymt þessu.. 
Ég átti ekki til orð. Andskotinn sagði ég bara og labbaði út.
Góð saga, eh?? Að læknirinn skuli geta gleymt þessu þegar það var
búið að segja honum þetta 2svar.. ég skildi þetta ekki.. Ég er alls
ekki sátt við þetta.
Ég held að ég eigi ekki eftir að segja eitthvað skemmtilegt
núna, þannig ég þegi bara í bili. Ég mun blogga aftur þegar ég er í
góðu skapi..
»
05.05.2006 14:42:13 / evilsen
Hæhæ.. ég get skrifað meira núna..
Já, ég semsagt komin inn í FG en konan var eitthvað að tala um
það að ég það færi alveg eftir eftirspurn hinna nemendanna hvort ég
fengi alla áfanga sem ég þyrfti til að útskrifast úr MA en þá gæti
ég bara tekið þá áfanga utan skóla.. Mér lýst bara rosa vel á þetta
allt saman og býst bara við fjöri á næsta ári.. hehe.. Ég
þekki líka einhverja Garðbæinga sem eru í FG þannig það verður
bara fjör að vera með þeim í skóla jájá.. svona er þetta allt
skemmtilegt..
Kórinn er á einhverju flippi núna.. Við erum í stórskuld sem ég
skil ekki ennþá hvernig var hægt og núna erum við bara í því að
selja eitthvað drasl og syngja fyrir pening til að reyna að redda
þessu þannig ef einhvern langar í rækjur, taliði þá við mig
geggjað spennandi.. Svo verðum við að synga á Glerártorgi á morgun,
og ætlum að selja smákökur og eitthvað rugl.. ég er í alvörunni að
fá ógeð af þessum kór.. endalausar fjáraflanir og rugl og nánast
ekkert skemmtilegt lengur.. Enda verð ég ekki í honum næsta ár en
ég væri bara svo vond ef ég myndi hætta bara núna og láta þau um
allar fjáraflanir, því þetta tengist mér nottla líka eitthvað..
OMG.. Palli er í sjallanum annað kvöld og það kostar bara 500
kall inn!! I'm so gonna be there... hehe... er loksins farin að
geta gert eitthvað annað en að hangsa öll kvöld á Superstar
æfingum.. ég er soltið bitur ég veit...
Ég fer svo suður eftir sirka 2 vikur á tónleika með
flautuleikara Jethro Tull Þetta er gömul hljómsveit sem gamla
settið tróð í hausinn á mér..and I like it..
Anyways... það er fullt af hlutum að hlakka til fyrir sumarið,
t.d. Englandsreisa með familíjunni, roadtrip með vinum mínum, sumar
og sól út um allt hehe.. jáh.. og svo má nottla ekki gleyma
skúringartusku stílnum mínum.. rosa fjör.. Hénna ég veit ekki alveg
hvað ég get sagt ykkur meira en endilega verið dugleg að kommenta..
allt að koma... bæjó
»
29.04.2006 17:00:42 / evilsen
Ég held allavega að nokkrir séu að verða kreisí á engu
bloggi.. hanna mín, ég er komin aftur.. hef einfaldlega ekki
nennt að skrifa hérna inn..
anyways.. páskafríið var semsagt mjög gott ég skemmti mér
heilmikið með ástu hrönn og familíjunni og fleira fólki og það var
allt saman bara mjög gaman.
og svo þegar ég er komin aftur norður, þá tekur barasta við eymd
og volæði.. vitiði, mér leiðist bara helling..:! en það sem samt
sem betur fer bara nokkrar vikur eftir hérna.. 5 ef mér skjátlast
ekki Svo tekur við sumar á Hótel Loftleiðum.. surprise,
surprise.. ég veit ekki hvernig mér tekst alltaf að segja já.. en
allavega..
já, þetta var frekar stutt blogg, það var verið að reka mig
út.. ég kveð þá í bili, og reyni að koma aftur sem fyrst og klára
það sem ég hef að segja
p.s. ég er komin með skólavist í FG sem gestanemandi MA, þannig
eftir 5 vikur kveð ég MA.. takk og bæ
»
05.04.2006 15:26:07 / evilsen
ó guð.. við erum hætt að sýna Jesus Christ Superstar eftir 10
sýningar, hver annarri betri... hehe... seinasta sýningin var sumsé
í gær og hún var líka tekin upp þannig það er möguleiki að kaupa
DVD þegar það kemur út.. En vá hvað það var sorglegt að vera að
hætta í gær... það fór fullt af fólki að gráta bara og þvílíkar
tilfinningar í gangi.. æðislegt fólk...jájájá.. herðu, það lítur
allt út fyrir það að lokapartýið okkar verði haldið í
Ljósvetningabúð eftir páskafrí öss... það verður sko fyllerí...
hef ekki drukkið áfengi í hvað, 3 mánuði eða eitthvað...
anyways.. Skoðanakönnunin segir mér það að ég eigi að fara til
systu í sumar.. Ef ég mætti ráða og ætti fullt, fullt af pening, þá
mundi ég bara fara bæði til Hönnu og Stjána.. og já, Hanna, ég þarf
að spjalla við þig sem fyrst..
Ég er að fara heim í páskafrí á morgun.. byrjum á því að fara á
Gettu Betur, bæðevei, fyrir þá sem ekki vita þá erum við komin í
úrslit og munum taka verZlingana í rassgatið svo það sé vel
orðað.. vægast sagt.. þetta verður fróðlegt.. Svo fer ég bara
heim... En ég skal segja ykkur það að þó JCS sé búið þá tekur við
brjáluð törn í skólanum.. ég er búin að fresta næstum öllum mínum
verkefnum, þannig ég þarf að vinna helling upp í páskafríinu.. og
svo auðvitað eru kennarar svo yndislegir að láta okkur fá enn
fleiri verkefni til að vinna í páskafríinu... eg vil persónulega
þakka öllum kennurum fyrir að loka mig algjörlega frá heiminum
þegar ég á að vera í fríi að skemmta mér... sjáum til hvað
verður úr þessu...
ég þarf samt að fara að læra, þarf að fara í munnlegt enskupróf
í fyrramálið sem sagt er að sé písofkeik een betra að vera
undirbúin heldur en ekki.... só.. síja leiter og Gleðilega páska
efast um að ég skrifi mikið á síðuna í "fríinu"...
»
23.03.2006 10:19:26 / evilsen
ó mæ god.. þetta á eftir að verða ansi skrautlegt, þetta
sýningartímabil. það eru allir að verða veikir, að sjálfsögðu, og
ég er svona rétt að ná mér eftir veikindi..Vona bara að ég verði
það ekki aftur... ég er samt búin að vera dugleg að mæta á
æfingar og reyna að vera með þó ég leggi ekki 100% í það.. jebbsí..
Það er samt búið að vera mjög skrautlegt að fylgjast með hinum
þegar maður er ekki sjálfur að leika, ég fékk nebbla að horfa á
einn daginn þegar mér leið verst. Anyways.. ég mæli eindregið með
því að fólk komi að sjá þetta hjá okkur..
umm.. hvað skal segja.. já ratatoskur, eða opnir dagar, voru í
MA í gær og hinn og það var bara mjög gaman að gera eitthvað annað
en að glósa alla daga... ég fór á einhvern fyrirlestur um
skíðasvæðið Sölden í Austurríki sem var mjög áhugavert.. Systir mín
þekkir einmitt nokkra sem eru að vinna þarna... svo fór ég að sýna
"listir" mínar að klifra, það er geggjað langt síðan ég hef klifrað
síðast en þetta var bara mjög gaman... svo fór ég á fyrirlestur um
drauma og allt tengt þeim og svo að lokum fór ég á fyrirlestur um
Morfís.. ég held ég verði að segja að Morfís fyrirlesturinn hafi
verið sá skemmtilegasti sem ég fór á, en klifrið stendur samt
uppúr..
jább.. svona er þetta.. ég ætla að segja bæ núna...veit ekki
hvað ég get sagt ykkur...
Heil og sæl
»
10.03.2006 12:27:50 / evilsen
jejeje... getiði hvað.. Söngkeppni MA var í gær. Það var
ógisslega gaman, sérstaklega að taka þátt í henni. Sessý bjó til
íslenskan texta fyrir lagið Holding out for a hero og kallaði það
Fola, og bað mig, Steinunni sr. og Steinunni jr. að vera bakraddir.
Þetta heppnaðist bara rosalega vel því það sem upphaflega átti að
vera smá grín, meikaði það alla leið í 3ja sætið.. Vá, ég hélt
við mundum ærast úr fögnuði.. Semsagt, við deildum 3ja sætinu með
henni Írisi Hauksdóttur sem söng lagið Ironic, 2 sætið tók Þórunn
Rögnvaldsdóttir, litla systir Steinunnar sr., með lagið Over
the hills and far away og 1 sætið tók hljómsveitin Kusk með
frumsamda lagið King of the swing. Persónulega fannst mér að annað
lag hefði átt að vinna þetta en ekki ræð ég miklu í þessari keppni.
Anyways....
Víkjum fyrir öðru... Kennararnir eru aftur komnir á morðflipp.
þeir bókstaflega drekkja okkur í verkefnum, einmitt í
frumsýningarviku Jesus Christ Superstar. Ég veit ekki alveg hvað er
málið með að troða alltaf öllu stóru verkefnunum fyrir frí og svo
er nákvæmlega ekki neitt að gera eftir frí. Ég er allavega ekki
sátt með þetta því ég hef bara ekki græna glóru um það hvernig ég á
að fara að því að klára öll þessi verkefni og vera á JCS æfingum
til 10 á kvöldin Hjálp!!!
Það er alveg nóg að gera í JCS, rétt um 2 vikur í frumsýningu og
ekki nærri því allt komið sem þarf að redda.. Vonum það besta... Ég
ætla samt að segja þetta gott í bili, hef ekki mikið annað að segja
frá.. Kommentið nú fólk..
»
01.03.2006 10:19:06 / evilsen
Vá, þið trúið ekki hvað það er mikið að gera hjá mér, ég verð að
fara í verkfall..! Þar sem aðeins er um mánuður í frumsýningu JCS,
þá ákvað kórstjórinn að hafa æfingu á hverjum andskotans degi og
sumar meira að segja til 10 á kvöldin.... hvernig á ég að geta
lært? það er ekki alveg að gera sig að ég sé að fara að læra 10-11
á kvöldin og sé að mæta í skólann alveg... Svo nottla nokkur
stór verkefni í kring um frumsýningu, að sjálfsögðu... Ég má
varla sleppa æfingu þegar það er svona stutt í þetta... ekki
alveg nógu gott..
Ú ég verð að segja ykkur, ég fór upp á Langjökul seinustu helgi
með Stjána og familíjunni og ég man bara ekki eftir
því að það hafi nokkurn tíma verið svona flott færi upp á
jökli.. Meira að segja Stjáni fór á sínum bíl á
sumardekkjum upp.. Við heyrðum af slysinu sem var á Hofsjökli
í talstöðinni og fengum upp staðsetninguna og
ætluðum að keyra þangað afþví að hnitin sem við fengum
upp voru svo nálægt okkur en svo var það nottla vitlaust og
við búin að keyra í svona hálftíma til einskis.. en það var
samt geggjað gaman, ég vildi bara að pabbi hefði ekki verið búinn
að selja sleðann afþví ég öfundaði svo fólkið á sleðunum í
kring... svona er þetta...
Herðu já, svo núna um helgina þá er kóramót hérna á Akureyri og
við búumst við um 200 manns úr öðrum kórum hingað, að skemmta sér
með okkur.. það verður vonandi stuð.. annars var Stjáni að
pæla í að kíkja til mín en ef ég er svona rosalega
upptekin í einhverju kóramóti þá er það ekki alveg nógu gott..
ég er samt að hugsa um að segja þetta gott.. koma svo,
kommenta..
»
13.02.2006 21:16:21 / evilsen
hæhæ allir.. vá, finniði ástina í loftinu.. hehe.. Kristján
ætlar kannski að koma á ak. á morgun og fara með mér á bretti á
miðvikudaginn, ef veður leyfir.. vonandi kemst hann bara.. en já,
var að koma af MA bachelorette, fengum fríar pizzur og gos og ég
held bara að ég hafi aldrei séð svona marga í kvosinni nema í
frímínútum... það var allavega fullt af fólki þarna.. Mjög sætt og
rómó allt saman sem var að gerast..
Ég ætlaði bara aðeins og kíkja hérna inn og blogga smá, á alveg
böns eftir að læra að ég er ekki alveg að meika þetta, hef mjög
lítinn tíma á morgun til þess að læra útaf æfingunni þannig ég verð
bara að gera eins mikið og ég get í kvöld... sem ég efa að verður
mikið afþví ég er alveg að leka niður úr þreytu.. ekki alveg nógu
gott...
ég held ég segi þetta gott bara...
»
12.02.2006 14:31:26 / evilsen
hæ allir.. ég var að koma af superstar-æfingu og er núna að fara
að gera eitthvað íslenskuverkefni á netinu. Vá hvað það var gaman á
æfingunni. Ég er allt í einu komin í fullt af hlutverkum í þessum
söngleik, m.a. er ég dansari í nokkrum atriðum, fylgdarmey Maríu í
allavega einu atriði og svo er ég nottla hluti af crowdinu... Ég
þarf sveimérþá að fara að liðka mig til ef ég ætla að geta dansað í
þessu, má nú ekki segja of mikið en það eru fullt af high-kicks og
stökk út um allt, ekki nema von að ég sé búin að vera að drepast úr
harðsperrum seinustu daga.. en allavega er ógeðslega gaman að
vera í þessu og ég mæli eindregið með því að fólk komi að sjá
sýninguna sem verður frumsýnd 25.mars...
já, svona er þetta gaman, ég er búin að fá jákvætt svar frá
Fjölbraut í Ármúlanum en ef ég fæ það líka hjá MH þá held ég að ég
velji frekar MH. Ég fékk líka jákvætt frá FG, sem er nottla í
Garðabænum þannig það mundi eilla koma sér best fyrir mig miðað við
staðsetningu og solleis... Kemur allt saman í ljós.
Ég fór á Final Destination 3 í bíó í gær. Ojj ég ætla aldrei
aftur í ljós! ok, líkurnar á að þetta gerist eru mjög litlar en ég
meina þetta getur alveg gerst, og það eru dæmi um það að það kvikni
í ljósabekkjum útaf of gömlum perum en þá var fólk ekki í þeim. sem
betur fer. segi ekki meira fyrir ykkur sem hafið ekki séð myndina..
annars ætla ég að drífa mig að klára þetta verkefni núna, svo ég
segi þetta gott í bili.. Plís veriði duglegri að kommenta hjá
mér, ég er ekki búin að fá nein komment t.d. á hvað ykkur finnst um
skólaskiptin eða neitt, kommon... okei bæ
»
03.02.2006 09:57:01 / evilsen
jeminn hvað ég er ekki að meika þetta hérna. ég er búin að vera
hérna í 2 daga og ég er strax komin með upp í kok af því. Ég sakna
Stjána allt of mikið, og á engan pening til að fara heim áður en
hann fer út til U.S.A. aftur...  Hann ætlar samt að vera svo sætur
í sér að koma til mín hingað á Akureyri í næstu viku ef hann
kemst  Mig langar alveg ótrúlega mikið að komast inn í MH á næsta
ári. Við skulum sjá til hvernig það fer, en ég veit samt að ef ég
fer í skóla fyrir sunnan, sem ég geri líklegast, þá eru
peningavandamál mín úr sögunni  Ég og Stjáni erum búin að tala um
það að ef ég kem til U.S.A. þá ætlum við að fara í svona road
trip  Hann býr sko í Idaho, og við mundum keyra niður til
Californiu og skoða San Fransisco, Las Vegas, Los Angeles og svona
helstu staði þar  vá hvað það verður gaman ef ég fer...  en við
sjáum líka til með það, hvernig það fer. ég þarf samt að fara í
tíma, ég kem kannski aftur hérna í dag og blogga meir.. bæjó
»
01.02.2006 16:23:54 / evilsen
ég hef ákveðið að hætta þessari vitleysu í MA og ganga í
lið annars skóla.... ég hef pælt mikið í þessu, var
eiginlega hætt við að fara en fór svo aftur að pæla í þessu og tók
þá ákvörðun að nú væri nóg komið af rugli... ég er að eyða hellings
pening í þetta þegar ég þyrfti ekki að eyða eins miklu í bænum.. og
ekki bara það, það skiptir mig engu hvort ég útskrifist úr MA eða
bara hvaða skóla sem er, málið er bara að ég útskrifist. ég get
alveg eins gert það í Versló.. MH kemur líka sterklega til greina
útaf áherslunni a tónlist þar.. ég ætla að pæla aðeins í þessu..
endilega segið hvað ykkur finnst um þetta..
Þetta er planið fyrir næstu mánuðina:
- klára þessa önn í MA
- vinna eins og mother focker í sumar
- fara til útlanda, veit ekki hvert ennþá
- klára skólann í Versló eða MH.. eða whatever
takk fyrir áheyrnina
»
27.01.2006 17:40:07 / evilsen
hæ allir... ég ákvað að blogga aðeins og deila vandræðum minum með
lesendum... málið er að ég hef fengið allskyns tilboð um
utanlandsferðir fyrir sumarið en þar sem ég verð að vinna eitthvað
og útksriftarferðin spilar líka eitthvað inní þá get ég því miður
bara leyft mér að fara í eina aðra ferð... svo þess vegna vil ég fá
smá komment á það hvað ég á að gera, ég get með engu móti ákveðið
mig... allt saman ótrúlega freistandi  jáh.. það er komið útúr
öllum prófum, náði öllu og er bara mjög ánægð með útkomurnar... 
allt í góðu hérna...  helgin er komin og ekki annað að gera
heldur en að skella sér út á lífið, Stjáni ætlar að draga mig í
eitthvað partý annað kvöld, sem verður væntanlega spennandi...
einhver frændi hans sem er að halda þetta í tilefni af því að hann
og kærastan hans eru að flytja í nýja íbúð eða eitthvað solleis...
Veit ekki hvað ég ætla að gera í kvöld, ekkert planað... jámm... ég
veit svosem ekki hvað ég get sagt ykkur meira, dagurinn í dag fór í
rúst, ég ætlaði að gera svo mikið en kom engu í verk....
helvítis... ekki að ég sé eitthvað þreytt, heldur er tæknin
eitthvað að stríða okkur þessa dagana...  okei, ég segi þetta
gott... endilega segið ykkar skoðun á utanlandsferðamálum... ok?
bæbæ
»
24.01.2006 13:04:17 / evilsen
hæhæ... getiði hvað? mín er finally komin í frí frá
prófalestrinum, og komin heim í Garðabæinn... nú er mar alveg búin
að gleyma hvernig á að blogga, neinei segi svona, ég er bara alveg
gjörsamlega útúr heilanum, eins og ég segi það, þessa dagana...
það er ekki alveg nógu gott, því að ég hef varla hugmynd um hver ég
er lengur... komin með æfinguna í því að skrifa geggjað formlega á
prófunum þannig ég biðst afsökunar á því hvernig bloggin mín munu
líta út næstu dagana,... hehemm.. já, ég er búin að fá útúr 3
prófum, náði þeim öllum, meiraðsegja íslenskunni sem btw ég var
mjög stressuð um.. ég held bara að ég hafi aldrei verið jafn
stressuð fyrir próf..
En sem betur fer er það úr sögunni og ég get verið ánægð með það
að þurfa ekki að taka hana upp... já, snúum okkur að öðrum
málefnum.. kórinn var með æfingar í próftíðinni og þá kom VMA
kórinn líka á æfingar hjá okkur "til þess að við getum tengst
böndum fyrir komandi verkefni" blablabla... ég sé ekki fram á það
að það gangi vel miðað við hversu lokaðir allir voru á þessum
æfingum... só sorrý, það geta ekki allir orðið vinir á nóinu... en
ég vona allavega að það batni eitthvað...
ég er að hugsa um að fara að segja þetta gott, og fara að panta
pizzuna sem Kristján sagði mér að gera ef ég yrði svöng... hann er
nebbla að vinna.. Au revoir...
»
Síður: 1 2 3 ... 5
|
|